Blakdeiild Aftureldingar býður blakara velkomna á Íslandsmót vor 2019. 

Blakdeild Aftureldingar býður 2.3.4.5. og 6.flokk blakara velkomna á Íslandsmót í blaki sem haldið verður í Mosfellsbæ helgina 4.-5.maí 2019. 

Leikið verður í eftirfarandi flokkum:

2.flokki pilta -  Mótagjald 15000kr/lið ( árg 1999-2002)

3.flokki pilta og stúlkna -  Mótagjald 15000kr/lið  (9 & 10 bekkur)

4.flokki pilta og stúlkna (6 manna blak) -  Mótagjald 15000kr/lið  (7 & 8 bekkur)

5.flokki blönduð lið (þriggja manna blak)-  Mótagjald 8000kr/lið  (5 & 6 bekkur)

6.flokki blönduð lið: Spilað verður bæði í þriggja manna blaki sem og kasta-grípa,  Skemmtimót  - Mótagjald 8000kr/lið (3 & 4 bekkur)

Búið er að opna fyrir skráningu á http://krakkablak.bli.is/ og lýkur henni miðvikudaginn 24.apríl og biðjum við ykkur um að virða þann tímaramma.

Boðið er upp á gistingu og fæði í Varmárskóla sem er við hlið Íþróttamiðstöðvarinnar að Varmá. Kostnaður við gistingu og fæði er 8.000kr/mann.

Skráning í gistingu og fæði fer fram á netfanginu: blakumfa@gmail.com.  Vinsamlegast sendið póst með fjölda í gistingu og fæði fyrir mánudaginn 29.apríl.

Mótagjald og gjald fyrir gistingu og fæði skal leggja inn á reikning:  Afturelding BUR Blakdeild kt. 460974-0119 0549-14-402103 og senda kvittun á netfangið blakumfa@gmail.com í síðasta lagi mánudaginn 29.apríl.

Nánari upplýsingar veita Droplaug ( 8229611) og Einar (6969540). Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið: blakumfa@gmail.com.

 Hlökkum til að sjá ykkur í Mosfellbæ í apríl.

Með góðri kveðju,

Blakdeild Aftureldingar

Nýjustu mótsfréttir